Um okkur

Telpur Productions

Telpur Productions er nýtt framleiðsluteymi sem kemur ungu listafólki á framfæri.

Hanna Álfheiður Gunnarsdóttir

Hanna Álfheiður Gunnarsdóttir

Guðríður Jóhannsdóttir

Guðríður Jóhannsdóttir

Verkefni

Kvikmyndaplakat — Telpurnar, íslensk stuttmynd 2026, sýnd í Bíó Paradís 13. og 14. ágúst

Kvikmyndaplakat · 2026

Myndin

Telpurnar

Telpurnar er glæný stuttmynd eftir Hönnu Álfheiði Gunnarsdóttur og Guðríði Jóhannsdóttur.

Þrjár vinkonur hittast eina kvöldstund. Á yfirborðinu virðist allt vera í himnalagi en allar hafa þær þó sinn djöful að draga og þegar líður á kvöldið koma þeir sífellt betur í ljós.

Markmið stuttmyndarinnar er að skapa fyndna en einnig gagnrýna sýn á samskipti í vinkonuhópum, væntingar og valdahlutverk innan þeirra. Verkið brýtur niður mörkin milli skáldskapar og raunveruleika og verður útkoman skondin og ófyrirsjáanleg.

Sýnd í Bíó Paradís
dagana 13. og 14. ágúst
klukkan 19:45 · salur 3

Fólkið

  • Guðríður Jóhannsdóttir Leikkona, handritshöfundur & framleiðandi
  • Hanna Álfheiður Gunnarsdóttir Leikkona, handritshöfundur & framleiðandi
  • Diljá Pétursdóttir Leikkona
  • Tómas Marshall Myndataka
  • Skúli Helgi Sigurgíslason Hljóð
  • Tristan Gylfi Baldursson Aðstoð á setti
  • Hrannar Tónlist

Frumsamið tónverk

Tónlist eftir Hrannar

Hafa samband